2ja Svefnherb. Par/Raðhús í Cumbre del Sol, Benitachell, Costa Blanca Norður €499,150
Aðrar útfærslur af þessari eign
Nútímalegar íbúðir með útsýni yfir Miðjarðarhafið í Cumbre del Sol
Glæsilegar íbúðir með nútímalegri hönnun þar sem áhersla er lögð á þægindi, hagkvæma nýtingu rýmis og lífsgæði við Miðjarðarhafið. Í boði eru 2ja eða 3ja svefnherbergja íbúðir með tveimur baðherbergjum og opnu eldhúsi sem tengist björtu stofu- og borðstofurými.
Íbúðir á jarðhæð eru með sérgarði og rúmgóðri verönd en efri hæð eru með stórar svalir með fallegu útsýni. Skipulag hverrar íbúðar er hannað til að hámarka rými, náttúrulega birtu og dagleg þægindi.
Vandaðar innréttingr
Tvö eða þrú svefnherbergi og tvö baðherbergi
Opið eldhús sem tengist stofu og borðstofu
Sérgarður og verönd á jarðhæð eða rúmgóðar svalir á efri hæð
Gólfhiti um alla íbúð
Loftkæling og hitun með loftræstikerfi og hitastilli í stofu
Orkusparandi Altherma-kerfi fyrir heitt neysluvatn
Heimilistæki innifalin
Innanhússhönnun sem skapar hlýlegt og glæsilegt yfirbragð
Sameiginleg aðstaða
Montecala Gardens býður upp á fallega sameiginlega útivistaraðstöðu sem hentar jafnt til afslöppunar sem fjölskyldulífs, þar á meðal:
Sundlaugar með rúmgóðum sólpöllum
Leiksvæði fyrir börn
Félagsaðstöðu (social club)
Fallega hannaða garða
Bílastæði fyrir íbúa
Frábær staðsetning
Montecala Gardens er staðsett innan hins virta íbúðasvæðis Cumbre del Sol og nýtur einstakrar staðsetningar með fallegu útsýni yfir Miðjarðarhafið. Náttúruunnendur geta notið fjölbreyttra gönguleiða, þar á meðal leiðarinnar að hinni stórbrotnu Cala Llebeig vík, sem er ein af fallegustu náttúruperlum Costa Blanca.
Íbúar hafa jafnframt aðgang að fjölbreyttri þjónustu innan Cumbre del Sol, svo sem:
Verslunarsvæði og matvöruverslun
Apótek og hárgreiðslustofu
Kaffihús, bari og veitingastaði
Padel- og tennisvelli
Göngu- og hjólaleiðir
Alþjóðlega skólanum Lady Elizabeth School
Reiðmiðstöð
Ströndum og fallegum víkum með strandbörum
Í stuttri akstursfjarlægð eru einnig Michelin verðlaunaðir veitingastaðir, glæsilegir golfvellir og smábátahafnir.
Íbúðirnar eru staðsettar í stuttri fjarlægð frá Cala Llebeig og aðeins um 4 km frá hinum heillandi bæ Moraira, þar sem finna má alla helstu þjónustu. Þetta er því kjörinn kostur sem fasta búsetu, orlofshús eða trausta fjárfestingu á Costa Blanca.
Vista| New | Par/Raðhús |
| Verð frá: €499,150 | Stærð: 109 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Montecala Gardens | Svefnherb.: 2 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2+ 1 | Svalir: 28 m2 |
| Garður: 143 m2 | Lyfta: Já |
| Kjallari: Nei | Loftkæling: Já |
| Helstu stærri raftæki: Já | Bílskúr: Að utanverðu |
| Verönd: 18 m2 | Sundlaug í sameign |
| Nálægt strönd | Nálægt verslun |
| Sjávarútsýni | Orkunotkun: B |
| Skoða eign í PDF skjali |































