4ra Svefnherb. Par/Fjórbýli í Pilar de la Horadada, Costa Blanca Suður €394,900
Bahia Homes . Ný og glæsileg raðhús, tilbúin til afhendingar, aðeins tvö eftir
Glæsileg raðhús með 3 eða 4 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og stórri sérþakverönd. Húsin eru hönnuð í nútímalegum stíl með náttúrusteinsáferð, mikilli birtu og fallegum útisvæðum.
Hver eign er á tveimur hæðum og býður upp á verönd beggja vegna hússins, sérþakverönd með sturtu og sumareldhúsi ásamt sérbílastæði.
Nútímaleg hönnun
Á jarðhæð er rúmgóð stofa og borðstofa, fullbúið eldhús, eitt svefnherbergi, baðherbergi og útgengt á verönd með bílastæði.
Á efri hæð eru tvö eða þrjú svefnherbergi til viðbótar, baðherbergi með vönduðum innréttingum og rúmgóð verönd.
Á efstu hæð er stór sérþakverönd með sturtu og sumareldhúsi, þar sem hægt er að njóta fallegs útsýnis yfir fjöllin og græn svæði í kring.
Frábær sameiginleg aðstaða
Bahia Homes er hluti af fallegu og vel hönnuðu íbúðahverfi með:
Sameiginlegri sundlaug
Upphituðum nuddpotti
Útilíkamsrækt
Rúmgóðu sameiginlegu útivistarsvæði
Frábær staðsetning
Eignirnar eru í rólegu og eftirsóttu svæði í sveitarfélaginu Pilar de la Horadada, þar sem stutt er í fallegar strendur, golfvelli og alla helstu þjónustu.
Sandstrendur Torre de la Horadada og Higuericas eru í hjóla- og göngufæri.
Góðar samgöngur eru við N-332 og AP-7 hraðbrautina. Alicante-flugvöllur er í um 50 mínútna akstursfjarlægð og Murcia/Corvera-flugvöllur í um 40 mínútna fjarlægð.
Bahia Homes hentar vel þeim sem vilja nútímalega eign nálægt ströndinni með glæsilegum útisvæðum og góðri sameiginlegri aðstöðu.
Vista| New | Par/Fjórbýli |
| Verð frá: €394,900 | Stærð: 113 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Bahia Homes Horadada | Svefnherb.: 4 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 103 m2 |
| Svalir (2): 9 m2 | Sólþak: 50 m2 |
| Lyfta: Nei | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Innbyggð | Helstu stærri raftæki: Já |
| Bílskúr: Lagt í stæði | Verönd: 5 m2 |
| Sundlaug í sameign | Nálægt verslun |
| Skirteini fyrir orkunotkun |





























