2ja Svefnherb. Íbúðir í Orihuela Costa, Costa Blanca Suður €349,500

Property video
Staðsetning

Kynnum glæsilega og nútímalega þakíbúð í VillaCosta III á Orihuela Costa, húsgögn fylgja.

Heildarstærð eignarinnar er 160 fm, þar með talið stórkostlegar þaksvalir (solarium). Íbúðin snýr til suðurs og býður upp á einstakt sjávarútsýni, mikið næði og er tilbúin til afhendingar.

Einn af kostum eignarinnar eru glæsilegar þaksvalirnar sem eru aðgengilegar beint með lyftu, sem veitir bæði þægindi og aðgeingi. Þar má njóta stórfenglegs útsýnis yfir Miðjarðarhafið, slaka á í nuddpotti eða verja tíma með fjölskyldu og vinum. Þetta er fullkomið útisvæði til afslöppunar og samveru allt árið um kring.

Íbúðin sjálf er 85 fm að stærð og skiptist í:

Tvö rúmgóð svefnherbergi með innbyggðum fataskápum.
Tvö glæsileg baðherbergi.
Fallegt hönnunareldhús, fullbúið Siemens heimilistækjum.
Bjart og opið alrými með stofu og borðstofu.
Smekklegar og tímalausar innréttingar og frágangur.

Eignin er seld fullbúin húsgögnum og er því tilvalin sem heilsársbúseta, glæsilegt orlofshús eða traust fjárfesting með útleigumöguleika.

Eigandinn hefur haldið eigninni einstaklega vel við og er vandvirkni og natni augljós í hverju smáatriði.

Með eigninni fylgir meðal annars:

Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu.
Sérgeymsla.
Lokað svæði sem veitir aukið öryggi.
Suðausturstaðsetning sem tryggir góða birtu og sól stóran hluta dagsins.

Ibúðin er staðsett í aðeins um 10 mínútna akstursfjarlægð frá fallegum ströndum Orihuela Costa. Í nágrenninu er fjölbreytt þjónusta, veitingastaðir, verslanir, golfvellir og verslunarmiðstöðvar, sem gerir staðsetninguna einstaklega eftirsótta.

Vista
EndursalaÍbúðir
Verð: €349,500Stærð: 81 m2 Byggðir
Tilvísun: 5343Svefnherb.: 2
Fjöldi Baðherbergja: 2Svalir: 19 m2
Sólþak: 79 m2Lyfta: Já
Kjallari: NeiLoftkæling: Já
Bílskúr: BilakjallariVerönd: Nei
Sundlaug í sameignNálægt golfvelli
Innifalin húsgögnSjávarútsýni
Orkunotkun: CSkoða eign í PDF skjali
Fylltu út formið hér að neðan til að senda þínar spurningar í tölvupósti

Skráðu þig og fáðu sent fréttabréf okkar með nýjustu upplýsingum um fasteignir, svæðin, sérstaka afslætti og tilboð. Sjáðu hér friðhelgisstefnu okkar; Þú getur afskráð þig hvenær sem er.