2ja Svefnherb. Íbúðir í Punta Prima, Orihuela Costa, Costa Blanca Suður €299,900

Property video
Staðsetning

Falleg íbúð í Oasis Beach, Punta Prima

Glæsileg og vel við haldin 2ja svefnherbergja íbúð í hinu vinsæla Oasis Beach hverfi í Punta Prima, á frábærum stað. Eignin býður upp á öll nútímaleg þægindi, mjög góð útisvæði og er tilbúin til afhendingar.

Íbúðin er með tveimur björtum svefnherbergjum með innbyggðum fataskápum og tveimur baðherbergjum, þar af eitt en suite. Rúmgott og opið alrými tengir saman stofu, borðstofu og nútímalegt eldhús og skapar bjart og notalegt umhverfi fyrir bæði daglegt líf og afslappandi frí.

Suður staðsetning tryggir mikla birtu og sól stóran hluta dagsins. Frá svölunum er útsýni yfir fallega sameiginlega garða og svæði – fullkomið fyrir morgunkaffið, útiveru eða notalegar stundir í sólinni.

Stór sérþakverönd

Einn helsti kostur eignarinnar er stór sérþakverönd sem gefur gríðarlega mikið auka útirými. Þar er nóg pláss fyrir sólbekki, útiborð og notalegt setusvæði og því tilvalið að njóta spænsku sólarinnar, taka á móti fjölskyldu og vinum eða slaka á í næði.

Eignin er einnig með loftkælingu um alla íbúð og sérbílastæði í neðanjarðarkjallara.

Oasis Beach – frábær staðsetning

Oasis Beach er vinsælt og vel við haldið íbúðahverfi með fallegum görðum, sameiginlegum sundlaugum og afslöppuðu andrúmslofti.

Frábær staðsetning í Punta Prima, í góðu göngufæri eða stuttri akstursfjarlægð frá fallegum ströndum, veitingastöðum, verslunum, matvöruverslunum og allri helstu þjónustu.

Frábært tækifæri til að eignast bjarta og þægilega íbúð á eftirsóttum stað í Punta Prima, hvort sem leitað er að framtíðarheimili, sumarhúsi eða góðri fjárfestingu.

Vista
EndursalaÍbúðir
Verð: €299,900Stærð: 66 m2 Byggðir
Tilvísun: 5374Svefnherb.: 2
Fjöldi Baðherbergja: 1+1Sólþak: 58 m2
Lyfta: NeiKjallari: Nei
Loftkæling: JáBílskúr: Já
Verönd: NeiNálægt golfvelli
Innifalin húsgögnSkirteini fyrir orkunotkun
Fylltu út formið hér að neðan til að senda þínar spurningar í tölvupósti

Skráðu þig og fáðu sent fréttabréf okkar með nýjustu upplýsingum um fasteignir, svæðin, sérstaka afslætti og tilboð. Sjáðu hér friðhelgisstefnu okkar; Þú getur afskráð þig hvenær sem er.