2ja Svefnherb. Íbúðir í Lomas de Cabo Roig, Orihuela Costa, Costa Blanca Suður €390,000
Viva Life er glæsilegt og einstakt verkefni staðsett í Lomas de Cabo Roig á Orihuela Costa.
Við hönnun og uppbyggingu verkefnisins eru gæði, stílhrein hönnun og þægindi höfð að leiðarljósi. Verkefnið samanstendur af 24 rúmgóðum tveggja og þriggja svefnherbergja íbúðum og þakíbúðum með stórum þaksvölum (solarium).
Við byggingu íbúðanna eru eingöngu notuð hágæða byggingarefni og vandlega valdar innréttingar. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að hámarka náttúrulega birtu þannig að öll rými njóti birtu og notalegs andrúmslofts. Samfelld tenging milli innirýma og rúmgóðra svæða skapar einstaka upplifun þar sem næði og fallegt sjávarútsýni njóta sín til fulls. Arkitektúrinn tryggir rólegt og einkar notalegt umhverfi með öryggi, næði og víðáttumiklu útsýni yfir Miðjarðarhafið. Svæðið er umkringt náttúru og myndar sannkallaða vin.
Í sameign er fyrsta flokks aðstaða með fallega hönnuðum görðum og útivistarsvæðum, stórri sundlaug með sérsvæði fyrir börn, heitum potti, grillaðstöðu, fullbúnni líkamsræktarstöð með bæði þol og styrktartækjum, góðri loftræstingu og útsýni yfir garðana. Auk þess er þar snyrting fyrir gesti, bílastæði í kjallara og sérgeymslur fyrir hverja íbúð.
Verkefnið er staðsett í Lomas de Cabo Roig á Orihuela Costa með góðu aðgengi að AP-7 Miðjarðarhafshraðbrautinni. Bæði Alicante- og Murcia-alþjóðaflugvellir eru í um 30 mínútna akstursfjarlægð.
Cabo Roig er eftirsótt svæði sem er þekkt fyrir verndaðar sandstrendur, smábátahöfn og fjölbreytt útivistar-, íþrótta og afþreyingarsvæði. Verslunarmiðstöðin La Zenia Boulevard er aðeins um fimm mínútna akstur fjarðlægð og Dos Mares verslunarmiðstöðin í San Javier er í um tíu mínútna akstursfjarlægð.
Í nágrenninu eru nokkrir af vinsælustu golfvöllum Costa Blanca þar á meðal Campoamor Golf, Lo Romero Golf, Las Ramblas Golf og Las Colinas Golf & Country Club. Einnig eru La Peraleja og La Torre Golf skammt undan. Á svæðinu er jafnframt að finna náttúrugarðinn Salinas de San Pedro auk vinsælla áfangastaða á borð við Torre de la Horadada, Torrevieja og sögufrægu borgina Orihuela.
Vista| Tilbúin til afhendingar | Íbúðir |
| Verð: €390,000 | Stærð: 78 m2 Byggðir |
| Tilvísun: 0 | Svefnherb.: 2 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 38 m2 |
| Lyfta: Já | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Já | Bílskúr: Bilakjallari |
| Verönd: Nei | Sundlaug í sameign |
| Nálægt verslun | Sjávarútsýni |
| Skirteini fyrir orkunotkun | Skoða eign í PDF skjali |













































