3ja Svefnherb. Íbúðir í San Miguel de Salinas, Costa Blanca Suður €399,900

Area video
Staðsetning

Paradise Resort, virkilega fallegar íbúðir á fallegum stað

Paradise resort er nýr kjarni íbúða staðsett í hinu fallega þorpi San Miguel de Salinas, umkringdur fallegri sveit með sítrus og möndlulunduum og með þjóðgarðinn í Sierra Escalona rétt við dyraþrepið. Íbúðirnar eru hannaðar á fallegan og framúrstefnlegum hátt. Hægt er að fá íbúðirnar með tveimur eða þremur svefnherbergjum, allar íbúðirnar eru með stórri prívat svölum. Að innan eru íbúðirnar bjartar og rúmgóðar og allur frágangur í hæsta gæðaflokki.
Sameiginleg sundlaug verður hin glæsilegasta ca. 200 fm að stærð, önnur aðstaða verður meðal annars leikvöllur fyrir börn og líkamsræktarstöð fyrir fullorðna utandyra. Um er að ræða algjörlega lokað og öruggt svæði með bílastæðum og geymslum.
Hverfið er í göngufæri við verslanir, bari, veitingastaði og kirkjutorgið í San Miguel de Salinas. Það er mikið úrval af börum og veitingastöðum, bæði spænskum og alþjóðlegum, tæplega 30 í miðbænum einum, sem þýðir að árlegi tapas-viðburðurinn er mjög vinsæll.
Í innan við 15 mínútna akstursfjarlægð geturðu verið kominn á strendurnar við smábátahöfnina Guardamar del Segura, Mil Palmeras, Campoamor, Cabo Roig, La Zenia og Torrevieja. Hægt er að ganga og hjóla marga kílómetra meðfram síkinu sem liggur rétt við bæinn. Alicante og Murcia flugvöllur eru báðir í um 40 mínútna akstursfjarlægð.

Vista
Tilbúin til afhendingarÍbúðir
Verð: €399,900Stærð: 84 m2 Byggðir
Tilvísun: 0Svefnherb.: 3
Fjöldi Baðherbergja: 2Svalir: 330 m2
Lyfta: JáKjallari: Nei
Loftkæling: InnbyggðBílskúr: Að utanverðu
Verönd: 42 m2Sundlaug í sameign
Nálægt verslunSkirteini fyrir orkunotkun
Skoða eign í PDF skjali
Fylltu út formið hér að neðan til að senda þínar spurningar í tölvupósti

Skráðu þig og fáðu sent fréttabréf okkar með nýjustu upplýsingum um fasteignir, svæðin, sérstaka afslætti og tilboð. Sjáðu hér friðhelgisstefnu okkar; Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

Upplýsingarnar á þessari síðu eru útvegaðar af byggingaraðilum og fulltrúum þeirra. Viðskiptavinir geta fundið allar þessar upplýsingar sem kveðið er á um í skýrslu RD 515/89 á skrifstofu þessara aðila.