2ja Svefnherb. Sérhæðir í San Pedro del Pinatar, Costa Cálida €239,900
Aðrar útfærslur af þessari eign
Vandaðar sérhæðir á fallegum stað, stutt í alla þjónustu
Stílhreinar og fallegar sérhæðir með tveimur svefnherbergjum. Eignirnar á jarðhæð koma með stórri verönd og beinan aðgang að sameiginlegri sundlaug og eignirnar á efri hæð eru með sér aðstöðu á þaki hússins. Rúmgott fallegt eldhús með borðstofu og rúmgóða opna stofu með útgengi út á verönd. Svefnherbergin eru með rúmgóðum skápum og hjónaherbergið er einnig með sér baðherbergi.
Glæsilegur sameiginlegur garður með sundlaug með fossi, slökunarsvæði, svæði fyrir sólstóla og útisalerni við sundlaugina. Bílastæðin eru sér merkt fyrir hverja íbúð með foruppsetningu hleðslustöðvar fyrir rafbíla.
Eignirnar eru staðsettar við hliðina á Salinas náttúrugarðinum sem gerir þér kleift að njóta einstakts náttúrulegs umhverfis og frábærs sjávarútsýnis. Stutt er niður á strönd og á fjöldan allan af veitingastöðum og börum og ekki má gleyma fjögurra stjörnu Hotel & Spa Thalashia sem er með veitingastað, heilsulind, líkamsræktarstöð og fullt af annari afþreyingu, er í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð. Aðeins er um 30 mínútur að Murcia alþjóðaflugvellinum og 50 mínútur að Alicante flugvellinum.
| New | Sérhæðir |
| Verð frá: €239,900 | Stærð: 92 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Bella Salina | Svefnherb.: 2 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 39 m2 |
| Lyfta: Nei | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Innbyggð | Helstu stærri raftæki: Nei |
| Bílskúr: Lagt í stæði | Verönd: 19 m2 |
| Sundlaug í sameign | Nálægt verslun |
| Skirteini fyrir orkunotkun | Skoða eign í PDF skjali |

































