2ja Svefnherb. Sérhæðir í Los Altos, Orihuela Costa, Costa Blanca Suður €260,000
Aðrar útfærslur af þessari eign
Vandaðar íbúðir á fallegum stað, stutt í alla þjónustu
Sunset Hill Residential er virkilega skemmtilega hannaður lokaður kjarni með mismunandi úti svæðum til afþreyingar og slökunnar fyrir íbúana.
Hægt er að velja á milli sérhæða eða íbúða með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Sérhæðirnar sem eru á jarðhæð eru með sér garði en efri hæðirnar er með stórt sólþak yfir allri íbúðinni. Í kjallara er stæði fyrir bíl og geymsla.
Íbúðirnar eru í 4. hæða húsi, allar með stórum svölum en efsta hæðin er að auki með stórt sólþak.
Rúmgóð stofa/borðstofa með opið eldhús skapar samfellt og rúmgott rými. Íbúðirnar verða með tveimur svefnherbergjum með innbyggðum skápum. Hjónaherbergið verður með sér baðherbergi ( en-suite).
Glæsilegt útisvæði með sundlaug sem er aðskilt að hluta fyrir fullorðna og börn, garðsvæði umhverfis sundlaugina er með pergola, salerni er við sundlaugina, opið yfirbyggt sameiginlegt svæði með bekkjum og grillaðstöðu þar sem hægt er að borða með fjölskyldu og vinum ásamt líkamsræktarstöð og hobbyherbergii.
Sunset Hill Residential er staðsett á frábæru svæði nálægt ströndum Torrevieja, Punta Prima og Playa Flamenca. Einnig er stutt að Laguna Rosa í Torrevieja sem er hluti af náttúrugarðinum Lagunas de la Mata. Í næsta nágrenni er öll nauðsynleg þjónusta svo sem matvöruverslun í nokkurra mínútna fjarlægð, La Zenia verslunarmiðstöðin er í 8 mínútna fjarlægð, Torrevieja sjúkrahúsið er í 7 mínútna fjarlægð, Villamartin golfvöllurinn er aðeins 7 mínútur í burtu ásamt fjölmarga veitingastaða og kaffihúsa í nágrenni.
| New | Sérhæðir |
| Verð frá: €260,000 | Stærð: 82 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Sunset Hill Residential | Svefnherb.: 2 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 16 m2 |
| Lyfta: Nei | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Já | Helstu stærri raftæki: Já |
| Verönd: 11 m2 | Sundlaug í sameign |
| Nálægt verslun | Innifalin húsgögn |
| Skirteini fyrir orkunotkun | Skoða eign í PDF skjali |











































