2ja Svefnherb. Íbúðir í Benijofar, Costa Blanca Suður €275,000
Aðrar útfærslur af þessari eign
Glæsilegur kjarni sem er staðsettur í hinu fallega spænska þorpi Benijofar. Hægt er að velja um íbúðir með tvö eða þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Þakíbúðirnar eru með stóru sólþaki með fallegu útsyni til fjalla og sumarsólseturs. Kjarnanum fylgir stórt grænt svæði með sundlaug og að auki er hægt að kaupa bílastæði og geymslu.
Kjarninn er staðsettur í göngufjarlægð frá öllum þeim þægindum sem Benijofar hefur upp á að bjóða og nálægt hinu vinsæla Ciudad Quesada svæði á Costa Blanca suðurhlutanum. Benijofar er falin perla meðal appelsínugula svæða og aðeins nokkrum kílómetrum inn í landið frá Guardamar del Segura með nokkrar af bestu ströndum sem svæðið hefur upp á að bjóða.
Þetta vinsæla þorp hefur sína eigin kirkju og torg umkringt fullt af kaffihúsum og veitingastöðum, þar eru líka bankar, verslanir, matvöruverslanir og slátrari, skólar og læknamiðstöð, bókasafn, nokkrir almenningsgarðar og rútuþjónusta til stærri bæja s.s. Almoradi, Guardamar og Torrevieja.
Benijofar er fullkominn kostur fyrir þá sem vilja vera nálægt strandbæjunum, en nógu langt til að geta notið hins rólega lífs í spænskum bæ. Það er líka frábært fyrir þá sem vilja eyða meiri tíma á spáni, þar sem bærinn er með líflegt samfélag allt árið um kring, með mörgum viðburðum og uppákomum. Bærinn sjálfur hefur haldið mikið af sínum gamla byggingarstíl og þú finnur litlar steinsteyptar götur með dæmigerðum púeblo-húsum.
Ásamt ströndum í stuttri akstursfjarlægð er fjöldi golfvalla í innan við 5-10 mínútna akstursfjarlægðar. Benjiofar er líka nálægt AP7 hraðbrautinni sem leiðir þig beint til Alicante flugvallar á aðeins 30 mínútum.
Vista| New | Íbúðir |
| Verð frá: €275,000 | Stærð: 97 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Moma II | Svefnherb.: 2 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 17 m2 |
| Lyfta: Já | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Innbyggð | Helstu stærri raftæki: Já |
| Bílskúr: Valmöguleiki | Verönd: Nei |
| Sundlaug í sameign | Nálægt verslun |
| Innifalin húsgögn | Skirteini fyrir orkunotkun |
| Skoða eign í PDF skjali |











































