2ja Svefnherb. Íbúðir í El Raso, Guardamar, Costa Blanca Suður €299,000
Aðrar útfærslur af þessari eign
SaliSol Resort er kjarni með einstaklega fallegum íbúðum með fallegri hönnun og sameiginlegum görðum og sundlaug. Það eru fimm fjölbýli í kjarnanum og hver blokk er fjórar hæðir. Blokk eitt og tvö eru nú þegar komnar í sölu og hægt er að velja á milli íbúða á jarðhæð með garði, íbúðirnar á efri hæðum eru með stórar og rúmgóðar svalir og þakíbúðirnar eru með stórum svölum og aðstöðu upp á sólþaki.
Allar íbúðirnar eru með opnu skipulagi á milli stofu og eldhúss, tvö rúmgóð svefnherbergi með innbyggðum fataskápum og tvö baðherbergi, þar af annað baðherbergi inn af hjónaherbergi. Úr stofu og einu svefnherberginu er gengið út á svalir eða garð.
Sameiginlega svæðið á SaliSol Resort er með fallega græna garða, sundlaug, heilsulind og leikvöll fyrir börnin. Búið er að koma upp hleðslustöð fyrir rafbíla og vespur og bílastæði bílakjallara.
Staðsettningin er einstök með fallegu útsýni yfir saltvatnslónið og miðjarðarhafsströndina. Í næsta nágrenni eru nokkrir veitingastaðir, verslanir og stórmarkaðir. Í stuttri akstursfjarlægð er hægt að komast á frábærar strendur Guardamar del segura og nokkra af bestu golfvöllum Costa Blanca eða stóru verslunarmiðstöðvarnar sem eru á svæðinu.
Guardamar del Segura er notalegt spænskt þorp sem teygir sig meðfram löngum og mjög vinsælum sandhólum, aðeins í um hálftíma frá Alicante. Að komast á flugvöllinn tekur um 30 mínútur með bíl.
Vista| New | Íbúðir |
| Verð frá: €299,000 | Stærð: 80 m2 Byggðir |
| Tilvísun: SaliSol Resort | Svefnherb.: 2 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 52 m2 |
| Lyfta: Já | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Innbyggð | Helstu stærri raftæki: Já |
| Bílskúr: Bilakjallari | Verönd: Nei |
| Sundlaug í sameign | Nálægt verslun |
| Orkunotkun: A | Skoða eign í PDF skjali |









































