1 Svefnherbergi Penthouse í Villajoyosa, Costa Blanca Norður €258,000
Aðrar útfærslur af þessari eign
Nýjar íbúðir aðeins 200 metrum frá ströndinni - Afhending í lok árs 2026
Nýtt og glæsilegt verkefni í hjarta Villajoyosa, aðeins 200 metrum frá ströndinni. Verkefnið samanstendur af tveimur fallegum og nútímalegum byggingum með íbúðum í ýmsum stærðum, allt frá notalegum 1 svefnherbergja íbúðum upp í rúmgóðar 2ja og 3jasvefnherbergja íbúðir.
Önnur byggingin er sex hæðir og þar eru alls 15 íbúðir, en hin er fjögurra hæða og býður upp á 1 svefnherbergja íbúðir.
Mikil áhersla er lögð á gæði og vandaðan frágang. Allar íbúðir eru með fullbúnum og innréttuðum eldhúsum og fullbúnum baðherbergjum. Sumar íbúðir bjóða einnig upp á bílastæði í kjallara ásamt sérgeymslu.
Íbúar hafa aðgang að glæsilegri sameign með fjölbreyttri aðstöðu, þar á meðal fullbúinni líkamsrækt, afslappandi sauna, notalegum gastropub, sameiginlegu útisvæði og fallegu sólbaðssvæði.
Staðsetningin er einstaklega góð, hér getur þú notið rólegs lífs við Miðjarðarhafið, með ströndina aðeins örfá skref frá heimilinu.
Villajoyosa er heillandi strandbær, aðeins 10 km frá Benidorm og 32 km frá Alicante. Bærinn er þekktur fyrir litrík hús, fallega strandlengju og ríka sögu og býður upp á allt sem þarf fyrir þægilegt og afslappað líf. Þar má finna fjölbreytta veitingastaði, verslanir, garða, söfn og blómlegt menningarlíf.
Alicante-alþjóðaflugvöllur er í um 20 mínútna akstursfjarlægð, sem og AVE-hraðlestakerfið, sem gerir Villajoyosa að frábærum valkosti fyrir bæði fasta búsetu og fríheimili.
Frábært tækifæri fyrir þá sem vilja nútímalegt heimili á einum eftirsóttasta stað Costa Blanca – aðeins 200 metrum frá ströndinni og í göngufæri við alla helstu þjónustu.
Vista| New | Penthouse |
| Verð frá: €258,000 | Stærð: 59 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Allonbay Urban | Svefnherb.: 1 |
| Fjöldi Baðherbergja: 1 | Svalir: 4 m2 |
| Lyfta: Já | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Já | Helstu stærri raftæki: Já |
| Bílskúr: Nei | Verönd: Nei |
| Nálægt strönd | Nálægt verslun |
| Sjávarútsýni | Skirteini fyrir orkunotkun |





























