3ja Svefnherb. Penthouse í La Serena Golf, Los Alcazares, Costa Cálida €455,000
Aðrar útfærslur af þessari eign
Serena Breeze er þyrping eigna sem samanstendur af íbúðum og einbýlishúsum með óviðjafnanlega staðsetningu í fyrstu línu við hinn virta La Serena golfvöll í Los Alcazares. Hægt er að fá Íbúðirnar sem 2ja eða 3ja svefnherbergja og einbýlishúsin eru 3ja svefnherbergja, báðar týpur eru með tveimur baðherbergjum. Einstök staðsetning þess býður upp á stórkostlegt útsýni yfir golfvöllinn og Mar Menor. Íbúðirnar eru í húsum með þremur hæðum og lyftu. Íbúðir á jarðhæð og annari hæð státa af 2 svefnherbergjum á meðan 3ja svefnherbergja íbúðirnar eru allar þakíbúðir með aðstöðu á þaki hússins og ótrúlegu útsýni. Eignunum fylgir einnig stæði í bílakjallara og sérgeymsla ásamt fallegum garði með sameiginlegri sundlaug, leiksvæði fyrir börn og frístundasvæði.
La Serena Golf er þekktur völlur á svæðinu fyrir vötn sín og gróður sem fléttast saman í gegnum umhverfið. Mar Menor er eitt af aðdráttarafli Costa Calida, það er stærsta saltlón í Evrópu. Serena Breeze er í stuttri fjarlægð frá Murcia flugvelli, ca. 25 mínútur og 55 mínútur frá Alicante flugvelli. Svæðið er tengt með þjóðveginum við Cartagena, Murcia og Alicante og restina af ströndum Costa Cálida og Costa Blanca með 332.
| New | Penthouse |
| Verð frá: €455,000 | Stærð: 95 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Serena Breeze | Svefnherb.: 3 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 31 m2 |
| Sólþak: 63 m2 | Lyfta: Já |
| Kjallari: Nei | Loftkæling: Innbyggð |
| Helstu stærri raftæki: Nei | Bílskúr: Bilakjallari |
| Verönd: Nei | Sundlaug í sameign |
| Nálægt verslun | Nálægt golfvelli |
| Sjávarútsýni | Orkunotkun: B |
| Skoða eign í PDF skjali |



































