3ja Svefnherb. Penthouse í Mil Palmeras, Costa Blanca Suður €455,000
Aðrar útfærslur af þessari eign
Lago Varese – Nútímalegar íbúðir aðeins 500 metra frá ströndinni
Lago Varese er nýtt og glæsilegt íbúðarverkefni á eftirsóttum stað í Mil Palmeras, aðeins 500 metra frá fallegri sandströnd Miðjarðarhafsins.
Verkefnið samanstendur af 24 nútímalegum íbúðum með 2 eða 3 svefnherbergjum, rúmgóðum svölum/veröndum og fallegum sameiginlegum útisvæðum.
Í boði eru íbúðir á jarðhæð með stórum einkaveröndum, íbúðir á miðhæðum með notalegum svölum og glæsilegar íbúðir á efstu hæðum með fallegu útsýni.
Íbúðirnar eru bjartar og nútímalegar, með opnu eldhúsi og stofu sem mynda rúmgott og notalegt alrými. Allar íbúðir eru með sér þvottahúsi, annaðhvort tengdu eldhúsinu eða staðsettu á svölum, auk 2 baðherbergja, þar af eitt sérbaðherbergi inn af hjónaherbergi.
Í sameiginlegum útisvæðum er að finna nokkrar sundlaugar, fallega göngustíga og bílastæði fyrir íbúa.
Staðsetningin er frábær, aðeins 500 metrar frá ströndinni og í göngufæri frá veitingastöðum, matvöruverslunum, verslunum, apóteki og kaffihúsum. Golfáhugafólk fær einnig nóg fyrir sinn snúð, en fjöldi glæsilegra golfvalla er í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð.
Með frábæru loftslagi, fallegri strönd og allri helstu þjónustu í næsta nágrenni er Lago Varese kjörinn staður fyrir þá sem vilja njóta lífsins við Miðjarðarhafið.
Vista| New | Penthouse |
| Verð frá: €455,000 | Stærð: 98 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Lago Varese | Svefnherb.: 3 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Lyfta: Já |
| Kjallari: Nei | Loftkæling: Innbyggð |
| Helstu stærri raftæki: Nei | Verönd: 14 m2 |
| Sundlaug í sameign | Nálægt strönd |
| Nálægt verslun | Skirteini fyrir orkunotkun |
| Skoða eign í PDF skjali |































