2ja Svefnherb. Penthouse í Aguas Nuevas, Torrevieja, Costa Blanca Suður €399,000
Gomera Star - Aðeins eftir þetta eina Penthouse
Gomera Star er nýtt verkefni með nútímalegum tveggja svefnherbergja íbúðum sem bjóða upp á rúmgóða verönd og frábæra staðsetningu nálægt sjónum í Aguas Nuevas í Torrevieja.
Þessi glæsilega uppbygging samanstendur af 16 íbúðum. Íbúðirnar eru skiptar niður á tvær þriggja hæða byggingar, með aðeins tveimur íbúðum á hverri hæð, sem skapar rólegt og einkar þægilegt umhverfi.
Hver íbúð er hönnuð með opnu skipulagi þar sem stofa og eldhús mynda samfellda og bjarta heild, fullkomið rými til daglegs lífs og samveru. Íbúðirnar eru með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum og tveimur glæsilegum baðherbergjum, þar af er annað þeirra ensuite-baðherbergi við hjónaherbergið, sem veitir aukin þægindi og næði.
Íbúðir á jarðhæð eru með stóra suðurverönd og minni verönd sem snýr til norðurs, tilvalið til að njóta útiveru eða taka á móti gestum. Íbúðir á miðhæð eru einnig með tvær svalir sem bjóða upp á mismunandi sólaráttir yfir daginn. Þakíbúðirnar eru með tvær svalir auk einkasólþaks (þakverönd), sem er fullkominn staður til að njóta kvöldverðar undir stjörnubjörtum himni eða slaka á með fallegu útsýni yfir umhverfið.
Gomera Star hefur verið hannað með þægindi í huga. Hveri íbúð fylgir sérbílastæði og íbúar hafa aðgang að fallegu lokuðu sameiginlegu svæði með snyrtilegum görðum, upphitaðri sundlaug og líkamsræktaraðstöðu.
Staðsetningin í Aguas Nuevas tryggir alla helstu þjónustu í göngufæri, svo sem verslanir, apótek, bankar og matvöruverslanir, auk þess sem Miðjarðarhafið er aðeins í stuttri göngufjaðlægð. Miðbær Torrevieja er einnig skammt undan og býður upp á fjölbreytt úrval veitingastaða, kaffihúsa og afþreyingar. Þá eru verslunarmiðstöðvar og golfvellir í stuttri akstursfjarlægð, sem skapar fullkomið jafnvægi milli afslöppunar og góðs aðgengis að þjónustu. Frábærar vegasamgöngur eru við Alicante-flugvöll, sem er í um 45 mínútna akstursfjarlægð.
Vista| New | Penthouse |
| Verð frá: €399,000 | Stærð: 87 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Gomera Star | Svefnherb.: 2 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 15 m2 |
| Svalir (2): 6 m2 | Sólþak: 41 m2 |
| Lyfta: Já | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Já | Helstu stærri raftæki: Já |
| Verönd: Nei | Sundlaug í sameign |
| Nálægt strönd | Nálægt verslun |
| Skirteini fyrir orkunotkun | Skoða eign í PDF skjali |





























