3ja Svefnherb. Par/Raðhús í Pilar de la Horadada, Costa Blanca Suður €339,900

Ný raðhús í aðeins um 2 km frá ströndinni. Afhending á fasa 1 í Desember 2026 og fasa 2 er í September 2027

Lo Monte Selection er nýtt og glæsilegt íbúðahverfi í Pilar de la Horadada, á frábærum stað á Costa Blanca. Aðeins 2 km frá ströndinni eru í boði nútímaleg raðhús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum.

Húsin eru á tveimur hæðum auk stórs sérþaks með útsýni. Á jarðhæð er rúmgóð stofa og borðstofa með opnu og fullbúnu eldhúsi, eitt svefnherbergi og baðherbergi.

Á efri hæð eru tvö svefnherbergi og baðherbergi. Annað svefnherbergið er með sérverönd sem hentar vel til að slaka á og njóta sólarinnar.

Á efstu hæð er stór sérþakverönd með útsýni yfir næsta umhverfi. Hveri eign fylgir stæði í bílakjallara.

Frábær sameiginleg aðstaða

Hverfið býður upp á fallega hannaða sameiginlega aðstöðu fyrir alla fjölskylduna:

Sameiginlega sundlaug
Falleg sameiginleg garðsvæði
Leiksvæði fyrir börn
Frábær staðsetning

Pilar de la Horadada er fallegur strandbær syðst á Costa Blanca, þekktur fyrir gott loftslag og mikil lífsgæði. Í miðbænum er gott úrval verslana, matvöruverslana, veitingastaða og allrar helstu þjónustu.

Fallegar strendur Torre de la Horadada og Mil Palmeras eru aðeins um 5 mínútna akstursfjarlægð, með gylltum sandi og fallegri strandgötu.

Á svæðinu eru einnig hjólaleiðir, gönguleiðir og fjölbreytt íþróttaaðstaða. Fjöldi þekktra golfvalla er innan 15 mínútna aksturs frá Torre de la Horadada, þar á meðal Lo Romero, Roda Golf, Las Colinas Golf & Country Club, Campoamor, Villamartín og Las Ramblas.

Alicante-flugvöllur er í um 50 mínútna akstursfjarlægð og Murcia/Corvera-flugvöllur í um 40 mínútna fjarlægð.

Lo Monte Selection er frábær kostur fyrir þá sem vilja nýtt og nútímalegt heimili nálægt ströndinni, með góðri aðstöðu og golfvöllum í næsta nágrenni.

Vista
NewPar/Raðhús
Verð frá: €339,900Stærð: 81 m2 Byggðir
Tilvísun: Lo Monte Selection TownhousesSvefnherb.: 3
Fjöldi Baðherbergja: 2Svalir: 16 m2
Sólþak: 34 m2Garður: 33 m2
Lyfta: NeiKjallari: Nei
Loftkæling: InnbyggðHelstu stærri raftæki: Já
Bílskúr: BilakjallariVerönd: Nei
Sundlaug í sameignNálægt verslun
Skirteini fyrir orkunotkun
Fylltu út formið hér að neðan til að senda þínar spurningar í tölvupósti

Skráðu þig og fáðu sent fréttabréf okkar með nýjustu upplýsingum um fasteignir, svæðin, sérstaka afslætti og tilboð. Sjáðu hér friðhelgisstefnu okkar; Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

Upplýsingarnar á þessari síðu eru útvegaðar af byggingaraðilum og fulltrúum þeirra. Viðskiptavinir geta fundið allar þessar upplýsingar sem kveðið er á um í skýrslu RD 515/89 á skrifstofu þessara aðila.