3ja Svefnherb. Sérhæðir í La Serena Golf, Los Alcazares, Costa Cálida €320,000
Aðrar útfærslur af þessari eign
Costa Serena er ný þyrping eigna við La Serena Golfvöllinn í Los Alcázares. Glæsilegar og fallega hannaðar eignir með gæðin að leiðarljósi. Stutt er í alla þjónustu, afþreyingu og veitingastaði.
Nánari lýsing:
Hægt er að velja um sérhæðir og einbýlishús í þessum kjarna. Sérhæðirnar eru allar með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Eignirnar á jarðhæð eru með sérgörðum en efrihæðirnar eru með rúmgóðar svalir og sér aðstöðu á þaki hússins. Eldhúsið er opið inn í stofu/borðstofu og þaðan er gengið út í garð eða svalir. Hægt er að velja um þrjár útfærslur af einbýlishúsum en öll eru þau með þrjú svafnherbergi og tvö baðherbergi. Öllum eignum fylgir stæði í bílakjallara og sér geymsla. Sameiginlegur sundlaugargarður er miðsvæðis með glæsilegu umhverfi og grænum svæðum. Við getum boðið viðskiptavinum okkar upp á 70% lán til allt að 30 ára og erum við með skoðunarferðir allt árið um kring. Áætluð afhending er í lok árs 2026.
Costa Serena er staðsett aðeins nokkrum metrum frá Serena golfvellinum og um 1 km frá ströndum Mar Menor. Stutt er að allri nauðsynlegri þjónustu eins og matvöruverslunum, íþróttamiðstöðvum, skólum og apótekum. Murcia flugvöllur er í aðeins um 30 mínútna fjarlægð en Alicante flugvöllur er í um 55 mínútna fjarlægð.
Vista| New | Sérhæðir |
| Verð frá: €320,000 | Stærð: 101 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Costa Serena | Svefnherb.: 3 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Garður: 49 m2 |
| Lyfta: Nei | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Innbyggð | Helstu stærri raftæki: Já |
| Bílskúr: Bilakjallari | Verönd: Nei |
| Sundlaug í sameign | Nálægt verslun |
| Nálægt golfvelli | Skirteini fyrir orkunotkun |
| Skoða eign í PDF skjali |







































