3ja Svefnherb. Sérhæðir í Pilar de la Horadada, Costa Blanca Suður €289,900

Green Garden V – sérhæðir í Pilar de la Horadada.

Green Garden V er nýtt verkefni með glæsilegum sérhæðum í Pilar de la Horadada á Costa Blanca.

Verkefnið samanstendur af 16 nútímalegum sérhæðum sem eru í boði í tveimur útfærslum. íbúðir á jarðhæð með séragarði eða íbúðir á efri hæð með stórri sérsólverönd (solarium) og útieldhúsi, sem er fullkomið til að njóta hins einstaka Miðjarðarhafsloftslags allt árið um kring. Íbúðirnar eru með tveimur eða þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum og hafa verið hannaðar með áherslu á þægindi og góða nýtingu rýmis. Íbúðirnar bjóða upp á bjartar og opnar vistarverur, vandaðan frágang, fullbúið eldhús með heimilistækjum og búið er að leggja fyrir loftræstikerfi með innfelldri loftkælingu.

Í sameign er fallega hannaður garður með sundlaug sem skapar notalegt umhverfi til slökunar og útivistar.

Verkefnið er staðsett í stuttri fjarlægð frá miðbæ Pilar de la Horadada þar sem finna má alla helstu þjónustu, svo sem matvöruverslanir, veitingastaði, kaffihús og græn svæði. Aðeins um 5 mínútna akstur er að ströndinni, sem gerir eignirnar að frábærum kosti bæði sem orlofshús og til heilsársbúsetu. Einnig er aðeins um 10 mínútna akstur til La Zenia og Villamartín, þar sem er fjölbreytt úrval verslana, veitingastaða og afþreyingar. Nokkrir vinsælir golfvellir eru í nágrenninu, Murcia-flugvöllur er í um 30 mínútna akstursfjarlægð og Alicante-flugvöllur í um 50 mínútna akstursfjarlægð.

Vista
NewSérhæðir
Verð frá: €289,900Stærð: 89 m2 Byggðir
Tilvísun: Green Garden VSvefnherb.: 3
Fjöldi Baðherbergja: 2Garður: 36 m2
Lyfta: NeiKjallari: Nei
Loftkæling: JáHelstu stærri raftæki: Já
Bílskúr: Lagt í stæðiVerönd: 6 m2
Sundlaug í sameignNálægt verslun
Innifalin húsgögnSkirteini fyrir orkunotkun
Skoða eign í PDF skjali
Fylltu út formið hér að neðan til að senda þínar spurningar í tölvupósti

Skráðu þig og fáðu sent fréttabréf okkar með nýjustu upplýsingum um fasteignir, svæðin, sérstaka afslætti og tilboð. Sjáðu hér friðhelgisstefnu okkar; Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

Upplýsingarnar á þessari síðu eru útvegaðar af byggingaraðilum og fulltrúum þeirra. Viðskiptavinir geta fundið allar þessar upplýsingar sem kveðið er á um í skýrslu RD 515/89 á skrifstofu þessara aðila.