3ja Svefnherb. Tourist Apartment í San Javier, Costa Cálida €260,000
Aðrar útfærslur af þessari eign
Villamar Touristic Apartments VII er glæsileg íbúðasamstæða með nútímalegum íbúðum með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Samstæðan er staðsett í aðeins 750 metra fjarlægð frá ströndinni í San Javier, heillandi strandbæ á Costa Cálida.
Í boði eru rúmgóðar þriggja svefnherbergja íbúðir með tveimur baðherbergjum. Hægt er að velja á milli jarðhæða með einkagarði, íbúða á miðhæðum með rúmgóðum svölum eða glæsilegra þakíbúða með þakverönd (solarium).
Við innganginn er bjart og opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi í samfelldu rými. Stórar rennihurðir á framhlið hleypa ríkulegri dagsbirtu inn og skapa bjarta og notalega stemningu. Íbúðirnar eru með þrjú rúmgóð svefnherbergi, þar af er hjónasvefnherbergi með sérbaðherbergi (en-suite). Þakíbúðirnar eru jafnframt með rúmgóðri þakverönd sem gengið er upp á beint af svölum íbúðarinnar.
Íbúðirnar eru byggðar samkvæmt háum gæðastöðlum og eru meðal annars með uppsett fyrir loftkælingu og fullbúnu eldhúsi með heimilistækjum. Hverri íbúð fylgir sérbílastæði inn á lóð en mögulegt er að kaupa bílastæði og sérgeymslu í bílakjallara.
Í sameiginlegum garði hafa íbúað aðgang að tveimur sundlaugum og fallega hönnuðum görðum sem skapa notalegt umhverfi til afslöppunar.
Samstæðan er einstaklega vel staðsett, í nálægð við alla helstu þjónustu og afþreyingu. Verslanir, veitingastaðir og íþróttaaðstaða eru í göngufæri og fallegar strendur Mar Menor eru aðeins 750 metra frá. Þar má njóta kyrrláts og hlýs sjávar, en Miðjarðarhafsstrendurnar eru í aðeins fimm mínútna akstursfjarlægð. Fyrir golfáhugafólk eru nokkrir af vinsælustu golfvöllum svæðisins, þar á meðal Roda Golf og Mar Menor Golf, í innan við 10 km fjarlægð. Murcia Corvera-flugvöllur er í um 40 km fjarlægð og Alicante flugvöllur í um 80 km fjarlægð.
Vista| New | Tourist Apartment |
| Verð frá: €260,000 | Stærð: 85 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Villamar Touristic Apartments VII | Svefnherb.: 3 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 19 m2 |
| Garður: 39 m2 | Lyfta: Já |
| Kjallari: Nei | Loftkæling: Innbyggð |
| Helstu stærri raftæki: Já | Verönd: Nei |
| Sundlaug í sameign | Nálægt strönd |
| Nálægt verslun | Skirteini fyrir orkunotkun |
| Skoða eign í PDF skjali |



























