3ja Svefnherb. Tourist Apartment í Villajoyosa, Costa Blanca Norður €500,000

Paradis Suites er glæsileg íbúðasamstæða með 10 íbúðum og stórkostlegu sjávarútsýni, staðsett í aðeins 300 metra fjarlægð frá sjónum á milli strandbæjanna Villajoyosa og Finestrat og hinnar líflegu borgar Benidorm.

Þessi nýja íbúðabyggð í Villajoyosa býður upp á einstakt tækifæri til að eignast fullbúna íbúð í aðeins 300 metra fjarlægð frá ströndinni. Íbúðirnar eru hannaðar með bæði þægindi og góða útleigumöguleika í huga. Samstæðan samanstendur af aðeins 10 glæsilegum búðum, hver með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þar af einu en-suite við hjónasvefnherbergi og rúmgóðri verönd með fallegu sjávarútsýni.

Allar íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með húsgögnum og öllum helsta búnaði, tilbúnar til eigin nota eða útleigu. Þeim fylgir gilt leyfi til ferðamannaleigu sem gerir þær að afar áhugaverðum fjárfestingarkosti með mikla tekjumöguleika. Faglegt rekstrarfélag sér um alla umsýslu, útleigu og viðhald eignanna, sem tryggir eigendum áhyggjulaust eignarhald og möguleika á reglulegum leigutekjum þegar íbúðin er ekki í eigin notkun.

Sameiginleg aðstaða samstæðunnar er glæsileg og þar má finna fallega hannaða garða, sundlaug með nuddpotti og bílastæði.

Íbúðirnar eru staðsettar á rólegum stað við Cala Mallaeta og sameina einstaklega góða staðsetningu og þægilegt aðgengi að allri helstu þjónustu. Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í aðeins 200 metra fjarlægð og strendurnar Cala de les Puntes del Moro og Platja del Paradís eru aðeins um 700 metra frá með gullnum sandi og kristaltæru Miðjarðarhafinu. Fyrir golfáhugafólk er Puig Campana Golf völlurinn í aðeins 8 km fjarlægð. Á svæðinu er einnig fjölbreytt úrval af afþreyingu allt frá sjarmerandi gömlu miðbæjarkjörnum Villajoyosa til skemmtanalífsins og vinsælla þemagarða í Benidorm. Alicante flugvöllur er í um 35 mínútna akstursfjarlægð og tryggir greiðar samgöngur allt árið um kring.

Vista
NewTourist Apartment
Verð frá: €500,000Stærð: 83 m2 Byggðir
Tilvísun: Paradis SuitesSvefnherb.: 3
Fjöldi Baðherbergja: 2Svalir: 18 m2
Lyfta: JáKjallari: Nei
Loftkæling: JáHelstu stærri raftæki: Já
Verönd: NeiSundlaug í sameign
Nálægt ströndNálægt verslun
Innifalin húsgögnSjávarútsýni
Skirteini fyrir orkunotkunSkoða eign í PDF skjali
Fylltu út formið hér að neðan til að senda þínar spurningar í tölvupósti

Skráðu þig og fáðu sent fréttabréf okkar með nýjustu upplýsingum um fasteignir, svæðin, sérstaka afslætti og tilboð. Sjáðu hér friðhelgisstefnu okkar; Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

Upplýsingarnar á þessari síðu eru útvegaðar af byggingaraðilum og fulltrúum þeirra. Viðskiptavinir geta fundið allar þessar upplýsingar sem kveðið er á um í skýrslu RD 515/89 á skrifstofu þessara aðila.