1 Svefnherbergi Tourist Apartment í Lo Pagan, San Pedro del Pinatar, Costa Cálida €229,900
Aðrar útfærslur af þessari eign
Nýtt og glæsilegt íbúðaverkefni með útleiguleyfi í Lo Pagán
Um er að ræða nýtt verkefni með nútímalegum íbúðum í Lo Pagán, vinsælu strandsvæði í San Pedro del Pinatar, aðeins um 1 km frá ströndinni.
Í boði eru íbúðir með einu svefnherbergi og einu baðherbergi eða tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, þar af einu ensuite-baðherbergi tengdu hjónaherbergi. Allar íbúðir eru með svalir og björtu opnu alrými þar sem fullbúið eldhús tengist stofu á fallegan og nútímalegan hátt.
Með hverri íbúð fylgir sérgeymsla á þaksvæði hússins. Sumum íbúðum fylgir einkabílastæði en einnig er hægt að kaupa stæði sérstaklega. Byggingin uppfyllir allar kröfur um aðgengi fyrir hreyfihamlaða.
Sameiginleg aðstaða er staðsett á þaki byggingarinnar og samanstendur af fallegu garðsvæði og sundlaug sem auðvelt er að komast að með lyftu. Allar íbúðir eru með veröndum þar sem hægt er að njóta sólarinnar allt árið um kring. Þá fylgir hverri íbúð einnig sérgeymsla í sameign.
Einn helsti kostur verkefnisins er að íbúðirnar eru seldar með ferðamannaleiguleyfi samkvæmt reglum Murcia héraðs. Eigendur geta því sjálfir séð um útleigu eignarinnar án þess að þurfa að starfa sem fyrirtæki eða hafa sérstök rekstrarleyfi. Leyfið er ótímabundið og tryggir lögmæta útleigustarfsemi til framtíðar, sem gerir eignirnar sérstaklega áhugaverðar fyrir þá sem leita að fjárfestingarkosti með tekjumöguleikum.
Íbúðirnar eru í göngufæri við verslanir, veitingastaði, kaffihús og aðra daglega þjónustu, sem gerir þær jafnt hentugar til eigin nota sem og til skammtímaleigu fyrir ferðamenn. Svæðið nýtur mikilla vinsælda meðal ferðafólks og býður því upp á góða útleigumöguleika.
Lo Pagán er þekkt fyrir afslappað andrúmsloft, fallega strandgötu með fjölbreyttu úrvali veitingastaða og kaffihúsa. Svæðið býður einnig upp á einstaka náttúru í friðlandinu Las Salinas, þar sem finna má fjölbreytt fuglalíf, þar á meðal flamingóa og aðra farfugla. Þar liggja einnig vinsælar hjóla og gönguleiðir sem gera íbúum og gestum kleift að njóta stórbrotinnar náttúru svæðisins.
Murcia alþjóðaflugvöllur er í um 35 km fjarlægð og Alicante flugvöllur í um 80 km fjarlægð.
Frábært tækifæri til að eignast glæsilega íbúð við ströndina með útleiguleyfi, á eftirsóttum stað þar sem lífsgæði, náttúrufegurð og fjárfestingarmöguleikar fara saman.
Vista| New | Tourist Apartment |
| Verð frá: €229,900 | Stærð: 52 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Playamar Turistic | Svefnherb.: 1 |
| Fjöldi Baðherbergja: 1 | Svalir: 9 m2 |
| Lyfta: Já | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Já | Helstu stærri raftæki: Já |
| Bílskúr: Valmöguleiki | Verönd: Nei |
| Sundlaug í sameign | Nálægt strönd |
| Nálægt verslun | Hjolastolaaðgengi |
| Skirteini fyrir orkunotkun | Skoða eign í PDF skjali |



























