2ja Svefnherb. Íbúðir í La Serena Golf, Los Alcazares, Costa Cálida €329,000
Aðrar útfærslur af þessari eign
Area Beach VII – Glæsilegar íbúðir við La Serena Golf, aðeins 300 metra frá Mar Menor
Area Beach VII er nýtt og glæsilegt íbúðarverkefni á eftirsóttum stað við La Serena Golf í Los Alcázares, aðeins 300 metra frá hlýjum og kyrrlátum sjó Mar Menor.
Verkefnið samanstendur af nútímalegum íbúðum með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Hægt er að velja um íbúðir á jarðhæð með einkagarði, íbúðir á miðhæðum með rúmgóðum veröndum eða glæsilegar þakíbúðir með stórum þakveröndum.
Þakverönd íbúðanna er með útisturtu og möguleika á sumareldhúsi og sérjacuzzi – kjörinn staður til að slaka á og njóta útsýnis yfir golfvöllinn og fallegt umhverfið.
Sameiginleg aðstaða er sérstaklega glæsileg og þar má meðal annars finna stóra lónlaga sundlaug með strandaðgengi, afslappandi svæði með Balí-rúmum, fallega hannaða garða, heilsulind, líkamsrækt og gufubað. Einnig er leiksvæði fyrir börn, tveir petanque-vellir og snyrtingar við sundlaugarsvæðið.
Með hverri íbúð fylgir merkt bílastæði í neðanjarðarbílageymslu.
La Serena Golf og Los Alcázares
La Serena Golf er einn af eftirsóttari golfvöllum svæðisins og er þekktur fyrir fallegt landslag, vötn og gróður sem fléttast saman við golfvöllinn. Sérstaða staðsetningarinnar er einnig sú að hægt er að ganga frá golfvellinum inn í miðbæ Los Alcázares, sem gefur íbúum möguleika á að njóta kyrrðar og fallegs umhverfis án þess að fórna nálægð við alla helstu þjónustu.
Los Alcázares er notalegur strandbær við Mar Menor þar sem sólskin og hlýtt loftslag einkenna svæðið stóran hluta ársins. Þar má finna fallegar strendur með hlýju og lygnu vatni, auk fjölbreyttrar þjónustu, verslana, veitingastaða og kaffihúsa.
Bærinn er einnig vel tengdur helstu stofnbrautum. Murcia-flugvöllur er í um 25 mínútna akstursfjarlægð og Alicante-flugvöllur í um 55 mínútna akstursfjarlægð.
Frábært tækifæri fyrir þá sem vilja sameina golf, strönd, lúxus og lífsstíl við Mar Menor.
Vista| New | Íbúðir |
| Verð frá: €329,000 | Stærð: 71 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Area Beach VII | Svefnherb.: 2 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 30 m2 |
| Garður: 3 m2 | Lyfta: Já |
| Kjallari: Nei | Loftkæling: Já |
| Helstu stærri raftæki: Já | Bílskúr: Bilakjallari |
| Verönd: Nei | Sundlaug í sameign |
| Nálægt strönd | Nálægt verslun |
| Nálægt golfvelli | Skirteini fyrir orkunotkun |
| Skoða eign í PDF skjali |















































