3ja Svefnherb. Sérhæðir í San Miguel de Salinas, Costa Blanca Suður €254,900
Aðrar útfærslur af þessari eign
Horizon II – Nýtt og glæsilegt íbúðaverkefni í San Miguel de Las Salinas
Horizon II er nýtt og vandað íbúðaverkefni í hinum fallega bæ San Miguel de Las Salinas á Costa Blanca. Um er að ræða tveggja og þriggja svefnherbergja sérhæðir sem hannaðar eru með þægindi og gæði leiðarljósi.
Í boði eru íbúðir á jarðhæð með einkagarði sem og íbúðir á efri hæð með rúmgóðum sólpöllum. Allar íbúðirnar eru með björtu og opnu alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda samfellda heild með útgengi á verönd, fullkomið til að njóta spænska loftslagsins allan ársins hring.
Sameiginleg aðstaða er til fyrirmyndar með tveimur sundlaugum fyrir bæði fullorðna og börn, auk fallega hannaðra garðsvæða sem skapa notalegt og fjölskylduvænt umhverfi.
Í næsta nágrenni er vinsæl verslunarmiðstöð með fjölbreyttu úrvali af þjónustu, svo sem veitingastöðum, kaffihúsum, börum, verslunum og matvöruverslunum. Svæðið einkennist af rólegu og notalegu umhverfi þar sem náttúra og nútímaþægindi fara vel saman.
San Miguel de Las Salinas er eftirsóttur staður til búsetu og frístundanota með alla helstu þjónustu innan seilingar og fjölbreytt samfélag heimamanna og erlendra íbúa. Þar er að finna fjölmarga veitingastaði og afþreyingarmöguleika sem henta öllum.
Inn um 15 mínútna aksturs eru vinsælar strendur Guardamar del Segura, Torrevieja og Orihuela Costa, auk nokkurra af bestu golfvöllum svæðisins, þar á meðal Las Colinas, La Finca og Villamartín. Flugvellirnir í Alicante og Murcia eru í um 40 mínútna akstursfjarlægð.
Glæsilegar íbúðir á frábærum stað þar sem gæði, þægindi og einstakt Miðjarðarhafsumhverfi fara saman.
Vista| New | Sérhæðir |
| Verð frá: €254,900 | Stærð: 86 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Horizon II | Svefnherb.: 3 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Garður: 79 m2 |
| Lyfta: Nei | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Innbyggð | Helstu stærri raftæki: Nei |
| Bílskúr: Nei | Verönd: 11 m2 |
| Sundlaug í sameign | Nálægt verslun |
| Skirteini fyrir orkunotkun | Skoða eign í PDF skjali |





























