3ja Svefnherb. Íbúðir í La Serena Golf, Los Alcazares, Costa Cálida €338,900
Aðrar útfærslur af þessari eign
Ný og glæsileg íbúðabyggð við La Serena golfvöllinn í Los Alcázares, aðeins 700 metrum frá ströndum Mar Menor.
Þessi nútímalega íbúðasamstæða samanstendur af 28 vönduðum íbúðum með fallegri bogadreginni hönnun. Byggingin hefur verið hönnuð með það að markmiði að hámarka náttúrulega birtu og bjóða upp á opið útsýni yfir golfvöllinn og nærliggjandi landslag.
Í boði eru tveggja og þriggja svefnherbergja íbúðir, allar með tveimur baðherbergjum, þar af einu en-suite baðherbergi við hjónasvefnherbergið. Íbúðir á jarðhæð og annari hæð eru með rúmgóðum svölum sem henta einstaklega vel fyrir útimáltíðir og afslöppun. Þakíbúðirnar eru með stórum þakveröndum (solarium) með sumareldhúsi og því tilvalið að njóta sólarinnar allt árið um kring.
Íbúar hafa aðgang að glæsilegri sameiginlegri sundlaug í fallega hönnuðum garði. Hverri íbúð fylgir einnig sérbílastæði og sérgeymsla í bílakjallara sem tryggir bæði þægindi og öryggi.
Samstæðan er einstaklega vel staðsett, aðeins 700 metra frá ströndinni og um 1,5 km frá miðbæ Los Alcázares, þar sem er fjölbreytt úrval veitingastaða, verslana, kaffihúsa og annarrar nauðsynlegrar þjónustu. Staðsetningin sameinar kyrrð golfumhverfisins og nálægð við sjóinn og líflegan miðbæinn.
Los Alcázares státar af rúmlega sjö kílómetra langri strandlengju og er vel varðveittur strandbær með fjölbreytta þjónustu, þar á meðal verslunarkjarna, íþróttamannvirki og sundlaugar. Bærinn var upphaflega lítið sjávarþorp en hefur þróast í vinsælan áfangastað þar sem kjörið er að njóta frídaga eða búa allt árið um kring. Murcia alþjóðaflugvöllur er í um 35 km fjarlægð og Alicante flugvöllur í um 95 km fjarlægð.
Vista| New | Íbúðir |
| Verð frá: €338,900 | Stærð: 86 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Torre Golf Garden | Svefnherb.: 3 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 20 m2 |
| Lyfta: Já | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Innbyggð | Helstu stærri raftæki: Já |
| Bílskúr: Bilakjallari | Verönd: Nei |
| Sundlaug í sameign | Nálægt strönd |
| Nálægt verslun | Nálægt golfvelli |
| Skirteini fyrir orkunotkun | Skoða eign í PDF skjali |













































