3ja Svefnherb. Penthouse í Benijofar, Costa Blanca Suður €396,900
Aðrar útfærslur af þessari eign
Bjartar og rúmgóðar íbúðir í hjarta Benijófar.
Um er að ræða glæsilegt verkefni með nútímalegum íbúðum og með einu, tveimur eða þremur svefnherbergjum og einu eða tveimur baðherbergjum. Íbúðirnar eru hannaðar með áherslu á þægindi, stíl og lífsgæði og bjóða upp á rúmgóða stofu með opnu eldhúsi. Stórar rennihurðir veita greiðan aðgang að veröndinni og hleypa mikilli birtu inn í íbúðirnar. Nútímaleg hönnun, gott skipulag og vandaður frágangur gera þetta að eftirsóknarverðum eignum á einu vinsælasta svæði Costa Blanca.
Öllum íbúðum fylgir rúmgóðar svalir sem er tilvalin til slökunar eða útimáltíða með útsýni yfir fallegt umhverfi Benijófar. Þakíbúðirnar bjóða auk þess upp á sérsólverönd (solarium) með tengingum fyrir nuddpott (Jacuzzi). Hverri íbúð fylgir sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara.
Benijófar sameinar kyrrð og sjarma spænskrar sveitabyggðar með stutta fjarlægð frá fallegum ströndum Costa Blanca. Bærinn er staðsettur skammt frá Torrevieja og Guardamar del Segura og býður upp á alla helstu þjónustu, svo sem verslanir, veitingastaði, kaffihús, bari, banka og fleira. Aðeins um 15 mínútna akstur er að ströndum Guardamar eða líflegu strand- og miðbæjarlífi Torrevieja. La Marquesa golfvöllurinn er í um 5 mínútna akstursfjarlægð og Alicante-flugvöllur í um 30 mínútna akstursfjarlægð.
Vista| New | Penthouse |
| Verð frá: €396,900 | Stærð: 123 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Mirador de Benijofar | Svefnherb.: 3 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 9 m2 |
| Lyfta: Já | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Innbyggð | Helstu stærri raftæki: Já |
| Bílskúr: Bilakjallari | Verönd: Nei |
| Sundlaug í sameign | Nálægt verslun |
| Skirteini fyrir orkunotkun | Skoða eign í PDF skjali |



























