2ja Svefnherb. Penthouse í Guardamar, Costa Blanca Suður €721,000
Aðrar útfærslur af þessari eign
La Pinada Guardamar – Glæsilegar íbúðir í hjarta Guardamar del Segura
La Pinada Guardamar er glæsilegt og vandað íbúðarverkefni í Guardamar del Segura, þar sem áhersla er lögð á nútímalega hönnun, vandaðan frágang og fyrsta flokks búnað.
Byggingin er á fimm hæðum og býður upp á rúmgóðar íbúðir með 2 svefnherbergjum, tvær íbúðir á hverri hæð. Allar íbúðir eru með vönduðum lúxusfrágangi og nútímalegum tæknibúnaði. Með hverri íbúð fylgir einnig rúmgóð sérgeymsla, um 12 m², sem er innifalin í kaupverði.
Frá 3. hæð njóta íbúðirnar glæsilegs sjávarútsýnis og stórra viðbótarveranda, allt að 30 m². Ströndin er aðeins í um 5 mínútna göngufjarlægð. Íbúðir á jarðhæð hafa beinan aðgang að einkagarði/verönd, um 8 m².
Staðsetningin er einstaklega góð. Úr íbúðunum er útsýni yfir fallegan garð með furutrjám og tröllatrjám og handan garðsins er hafið. Í göngufæri er íþróttamiðstöð þar sem hægt er að stunda tennis, synda í sundlaug eða taka þátt í ýmiss konar íþróttum.
La Pinada Guardamar er staðsett í hjarta Guardamar del Segura, aðeins örfáum metrum frá ráðhúsinu, menningarmiðstöðinni og aðaltorginu. Verslanir, kaffihús, barir og veitingastaðir eru allt í næsta nágrenni.
Alicante-flugvöllur er í aðeins um 25 mínútna akstursfjarlægð.
Frábær kostur fyrir þá sem vilja sameina nútímalega og vandaða íbúð, sjávarútsýni og frábæra staðsetningu í hjarta Guardamar.
Vista| New | Penthouse |
| Verð frá: €721,000 | Stærð: 126 m2 Byggðir |
| Tilvísun: La Pinada Guardamar | Svefnherb.: 2 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 7 m2 |
| Lyfta: Já | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Já | Helstu stærri raftæki: Já |
| Bílskúr: Nei | Verönd: Nei |
| Nálægt strönd | Nálægt verslun |
| Sjávarútsýni | Skirteini fyrir orkunotkun |
| Skoða eign í PDF skjali |































