3ja Svefnherb. Par/Fjórbýli í Vergel, Denia, Costa Blanca Norður €319,000
Aðrar útfærslur af þessari eign
Glæsileg parhús með sundlaug og þakverönd í El Verger
Til sölu eru 26 glæsileg og nútímaleg parhús á frábærum stað í El Verger, skammt frá fallegum ströndum Miðjarðarhafsins.
Húsin eru hönnuð með áherslu á nútímalegt útlit, vandað skipulag og þægindi. Kaupendur geta valið um eignir með tveimur eða þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.
Hver eign er með eldhúsi, björtu og opnu stofu- og borðstofurými, einkagarði, rúmgóðum veröndum og stórri sólverönd á þaki þar sem hægt er að njóta spænsku sólarinnar og Miðjarðarhafsloftslagsins.
Einkabílastæði fylgir öllum eignunum.
Sundlaug og falleg sameiginleg útisvæði
Íbúðasvæðið er einstaklega fallegt og býður upp á rúmgóða sameiginlega sundlaug ásamt vel hönnuðum og gróðursælum garðsvæðum.
Hér er tilvalið að njóta góðra daga með fjölskyldu og vinum, hvort sem það er við sundlaugina, í garðinum eða heima á eigin verönd.
Frábær staðsetning við Miðjarðarhafið
Eignirnar eru staðsettar skammt frá einhverjum af fallegustu ströndum svæðisins. Þar bíða meira en 4 km af sandströndum og náttúrulegum sandöldum – tilvalið fyrir þá sem vilja njóta strandlífsins og útiverunnar.
Stutt er í miðbæ El Verger þar sem finna má fjölbreytta þjónustu, verslanir, veitingastaði og annað sem þarf til daglegs lífs.
Golfáhugafólk hefur einnig úr ýmsu að velja. Oliva Nova Golf er í um 10 mínútna akstursfjarlægð og La Sella Golf í um 15 mínútna fjarlægð.
Alicante-flugvöllur er í um klukkustundar akstursfjarlægð.
Helstu kostir:
Ný og nútímaleg parhús
Val um 2 eða 3 svefnherbergi
2 baðherbergi
Einkagarður
Rúmgóðar verandir
Stór sólverönd á þaki
Einkabílastæði
Sameiginleg sundlaug
Falleg og gróðursæl sameiginleg útisvæði
Skammt frá ströndinni
Yfir 4 km af sandströndum og sandöldum í nágrenninu
Um 10 mínútur í Oliva Nova Golf
Um 15 mínútur í La Sella Golf
Um klukkustund frá Alicante-flugvelli
Frábær kostur fyrir þá sem vilja eign nálægt Miðjarðarhafinu, hvort sem leitað er að orlofseign, framtíðarheimili eða fjárfestingareign á Spáni.
Vista| New | Par/Fjórbýli |
| Verð frá: €319,000 | Stærð: 72 m2 Byggðir |
| Tilvísun: La Segaria III | Svefnherb.: 3 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 18 m2 |
| Sólþak: 76 m2 | Lyfta: Nei |
| Lóð: 195 m2 | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Já | Helstu stærri raftæki: Nei |
| Bílskúr: Lagt í stæði | Verönd: Nei |
| Sundlaug í sameign | Nálægt strönd |
| Nálægt verslun | Skirteini fyrir orkunotkun |
| Skoða eign í PDF skjali |













