2ja Svefnherb. Íbúðir í Santa Pola, Gran Alacant - Santa Pola, Costa Blanca Suður €248,000

Aðrar útfærslur af þessari eign

2ja Svefnherb. Íbúðir í Santa Pola

  • €263,000
  • New
  • 2 Baðherbergi
  • 2 svefnherb.
  • Stærð: 83 m2 Byggðir
  • Sundlaug í sameign
  • Nálægt strönd
  • Nálægt verslun

Nýjar og glæsilegar íbúðir í hjarta Santa Pola – aðeins 500 m frá ströndinni

Til sölu eru glæsilegar, nýbyggðar íbúðir á frábærum stað í miðbæ Santa Pola. Um er að ræða nýtt og nútímalegt 17 íbúða verkefni, staðsett aðeins steinsnar frá ströndinni og í innan við 15 mínútna akstursfjarlægð frá Alicante-flugvelli.

Íbúðirnar eru allar með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Hjónaherbergið er með sérbaðherbergi og svefnherbergin eru búin rúmgóðum fataskápum.

Eitt helsta aðdráttarafl íbúðanna eru stórar og glæsilegar verandir þar sem hægt er að njóta hins milda Miðjarðarhafsloftslags allt árið um kring. Þar er kjörið að slaka á í sólinni, njóta morgunkaffisins eða borða góðan kvöldverð undir berum himni.

Sundlaug á þaki og frábær sameiginleg aðstaða

Á þaki hússins er sundlaug ásamt sólbaðsaðstöðu og sturtum þar sem íbúar geta notið sólríkra daga í afslöppuðu umhverfi. Einnig eru fallega hönnuð græn svæði og sérstök aðstaða fyrir reiðhjól.

Einstök staðsetning

Staðsetningin er afar hentug fyrir þá sem vilja hafa allt við höndina. Verslanir, kaffihús, barir, veitingastaðir og önnur dagleg þjónusta eru í göngufæri.

Höfnin og fallegar strendur Santa Pola eru aðeins í um 500 metra fjarlægð, sem gerir auðvelt að njóta strandlífsins án þess að þurfa að nota bíl.

Alicante-flugvöllur er í innan við 15 mínútna akstursfjarlægð, sem gerir eignina sérstaklega hentuga fyrir þá sem vilja eiga orlofseign á Spáni með góðum samgöngum til og frá Íslandi.

Helstu kostir:

Nýbyggðar og nútímalegar íbúðir
2 svefnherbergi
2 baðherbergi
Hjónaherbergi með sérbaðherbergi
Rúmgóðar verandir
Sundlaug og sólbaðsaðstaða á þaki
Aðeins um 500 m frá strönd og höfn
Verslanir og veitingastaðir í göngufæri
Innan við 15 mínútur frá Alicante-flugvelli
Frábær staðsetning í miðbæ Santa Pola

Tilvalinn kostur fyrir þá sem leita að nútímalegri orlofseign, framtíðarheimili eða fjárfestingareign við spænsku Miðjarðarhafsströndina.

Vista
NewÍbúðir
Verð frá: €248,000Stærð: 82 m2 Byggðir
Tilvísun: Amber SunSvefnherb.: 2
Fjöldi Baðherbergja: 2Svalir: 14 m2
Svalir (2): 6 m2Lyfta: Já
Kjallari: NeiLoftkæling: Innbyggð
Helstu stærri raftæki: NeiVerönd: Nei
Sundlaug í sameignNálægt strönd
Nálægt verslunSkirteini fyrir orkunotkun
Skoða eign í PDF skjali
Fylltu út formið hér að neðan til að senda þínar spurningar í tölvupósti

Skráðu þig og fáðu sent fréttabréf okkar með nýjustu upplýsingum um fasteignir, svæðin, sérstaka afslætti og tilboð. Sjáðu hér friðhelgisstefnu okkar; Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

Upplýsingarnar á þessari síðu eru útvegaðar af byggingaraðilum og fulltrúum þeirra. Viðskiptavinir geta fundið allar þessar upplýsingar sem kveðið er á um í skýrslu RD 515/89 á skrifstofu þessara aðila.