1 Svefnherbergi Tourist Apartment í Vera, Costa Almeria €170,000
Aðrar útfærslur af þessari eign
Nýtt verkefni með íbúðum með leyfi til útleigu og villum við sjávarsíðuna í Vera Playa í Almería, með einkaströnd innan svæðisins.
Verkefnið samanstendur af 156 íbúðum og 44 parhúsum og einbýlishúsum, sem dreifast um vel skipulagt og gróið svæði.
Íbúðirnar eru í nútímalegum, lágreistum byggingum og eru með 1 eða 2 svefnherbergjum. Íbúðir á jarðhæð eru með rúmgóðum veröndum og sumar þeirra bjóða upp á möguleika á einkanuddpotti. Íbúðir á miðhæðum eru með góðu útisvæði og sjávarútsýni, en þakíbúðir eru með veröndum og sólþaki með útsýni yfir hafið.
Bílastæði utandyra fylgir hverri eign. Allt svæðið er hannað með aðgengi í huga og einnig eru í boði íbúðir aðlagaðar fyrir hreyfihamlaða.
Eitt helsta einkenni verkefnisins er einkasandströnd innan svæðisins, með beinu aðgengi að Vera Playa. Þar að auki eru tvær upphitaðar sameiginlegar sundlaugar, strandklúbbur með veitingaþjónustu og félagsaðstaða með líkamsrækt og spa.
Um er að ræða fullgildar leiguíbúðir sem verða reknar af faglegum rekstraraðila. Eigendur geta því nýtt eignina sjálfir en jafnframt leigt hana út þegar hún er ekki í notkun og aflað leigutekna.
Virðisaukaskattur vegna kaupa er jafnframt frádráttarbær, sem getur lækkað raunverulegan kostnað við kaupin og styrkt eignina sem fjárfestingarkost.
Vera Playa er vinsælt strandsvæði í Almería, þekkt fyrir breiðar sandstrendur, rólegt umhverfi og gott loftslag. Stutt er í alla helstu þjónustu og afþreyingu.
Desert Springs Golf Resort er í um 8 km fjarlægð, miðbær Vera í um 6 km fjarlægð og Almería-flugvöllur í um 85 km fjarlægð, eða um klukkustundar akstur.
| New | Tourist Apartment |
| Verð frá: €170,000 | Stærð: 41 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Dunas de Vera | Svefnherb.: 1 |
| Fjöldi Baðherbergja: 1 | Svalir: 13 m2 |
| Garður: 20 m2 | Lyfta: Já |
| Kjallari: Nei | Loftkæling: Já |
| Helstu stærri raftæki: Já | Verönd: Nei |
| Sundlaug í sameign | Nálægt strönd |
| Nálægt verslun | Hjolastolaaðgengi |
| Innifalin húsgögn | Í framlínu við strönd |
| Sjávarútsýni | Skirteini fyrir orkunotkun |
| Skoða eign í PDF skjali |





































