3ja Svefnherb. Einbýli í Santa Rosalia Lake, Torrepacheco, Costa Cálida €464,900
Aðrar útfærslur af þessari eign
Nýtt verkefni með 15 raðhúsum og parhúsum með einkasundlaug, staðsett innan Santa Rosalia Lake & Life Resort.
Húsin eru á tveimur hæðum og eru með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Eitt svefnherbergi er á jarðhæð og á efri hæð eru tvö svefnherbergi til viðbótar ásamt rúmgóðri opinni verönd.
Á jarðhæð er bjart og opið alrými þar sem nútímalegt eldhús tengist stofu og borðstofu, með góðri tengingu út í garðinn.
Hver eign er með einkagarð, sundlaug og bílastæði innan lóðar. Einnig er hægt að fá einkakjallara sem viðbót.
Santa Rosalia Lake & Life Resort er stórt og nútímalegt resort-svæði í Murcia héraði. Svæðið er lokað og aðgangsstýrt með öryggisgæslu allan sólarhringinn.
Í miðju svæðisins er stórt Crystal Lagoon með manngerðum ströndum og eyjum. Þar verður meðal annars aðstaða fyrir sólbað, sund, paddle board og kajaka. Einnig er gert ráð fyrir Beach Club, gönguleiðum, lautarferðasvæði, disc golfi, adventure golfi, jógasvæði, petanque og fjölnota íþróttasvæði.
Á svæðinu verða yfir 4.000 tré og um 124.000 m² af grænum svæðum.
Stutt er í fjölmarga golfvelli á svæðinu og aðeins stuttur akstur til Los Alcázares, þar sem finna má góðar sandstrendur, veitingastaði, bari og verslanir.
Murcia-flugvöllur við Corvera er í um 25 mínútna akstursfjarlægð og Alicante-flugvöllur í tæplega klukkustundar akstursfjarlægð.
| New | Einbýli |
| Verð frá: €464,900 | Stærð: 114 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Villas Azahar | Svefnherb.: 3 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 19 m2 |
| Garður: 130 m2 | Lyfta: Nei |
| Lóð: 226 m2 | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Innbyggð | Helstu stærri raftæki: Já |
| Bílskúr: Lagt í stæði | Verönd: Nei |
| Einka sundlaug | Nálægt verslun |
| Skirteini fyrir orkunotkun | Skoða eign í PDF skjali |

























