3ja Svefnherb. Par/Raðhús í Torrevieja, Costa Blanca Suður €394,990
Aðrar útfærslur af þessari eign
Residencial Santa Maria er nýtt verkefni með nútímalegum raðhúsum með 3 eða 4 svefnherbergjum í Torrevieja á suðurhluta Costa Blanca.
Raðhúsin með þremur svefnherbergjum og þremur baðherbergjum eru um 118 m² og skiptast á tvær hæðir, auk rúmgóðs sólþaks með góðu plássi fyrir sólbekki og útihúsgögn.
Á jarðhæð er björt stofa með opnu eldhúsi, rúmgott svefnherbergi með innbyggðum fataskáp og baðherbergi. Á efri hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi til viðbótar, bæði með innbyggðum fataskápum og sérbaðherbergi.
Fjögurra svefnherbergja húsin eru með auka hæð þar sem er svefnherbergi, baðherbergi og rúmgóð verönd þar sem hægt er að njóta sólarinnar og góða loftslagsins við Miðjarðarhafið.
Í sameign Residencial Santa Maria er sundlaug og aðstaða til sólbaða og afslöppunar. Bílastæði fylgir hverri eign.
Húsin eru staðsett í Nueva Torrevieja, í göngufæri við ýmsa þjónustu, meðal annars verslanir, apótek, banka og stórmarkaði. Stutt er niður að Miðjarðarhafinu og miðbær Torrevieja er einnig skammt frá.
Í stuttri akstursfjarlægð er einnig hægt að komast að verslunarmiðstöðvum og golfvöllum. Góðar vegtengingar eru við Alicante-flugvöll, sem er í um 45 mínútna akstursfjarlægð.
| New | Par/Raðhús |
| Verð frá: €394,990 | Stærð: 118 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Residencial Santa Maria | Svefnherb.: 3 |
| Fjöldi Baðherbergja: 3 | Sólþak: 46 m2 |
| Lyfta: Nei | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Innbyggð | Helstu stærri raftæki: Já |
| Verönd: Nei | Sundlaug í sameign |
| Nálægt verslun | Orkunotkun: A |
| Skoða eign í PDF skjali |













