3ja Svefnherb. Íbúðir í San Miguel de Salinas, Costa Blanca Suður €269,900
Aðrar útfærslur af þessari eign
Nature Apartments – San Miguel de Salinas
Nature Apartments í San Miguel de Salinas er nýtt og glæsilegt íbúðaverkefni á frábærum stað, aðeins í nokkurra mínútna göngufæri frá miðbænum. Þar má finna fallegar steinlagðar götur, notalegt aðaltorg og fjölbreytta þjónustu og afþreyingu.
Í boði eru 2ja og 3ja herbergja íbúðir, en byggingarnar eru hannaðar í kringum glæsilega sameiginlega sundlaug og fallega garða.
Íbúðirnar eru rúmgóðar og vel skipulagðar, með opinni stofu og eldhúsrými þar sem stórar svaladyr opnast út á verönd. Eldhúsið eru nútímalegt og hjónaherbergið er með innbyggðum fataskápum og rúmgóðu baðherbergi. Önnur svefnherbergi eru einnig með innbyggðum fataskápum og auka baðherbergi fylgir íbúðunum. Íbúðir á jarðhæð eru með sérgarði.
Í sameigninni eru fallegir garðar, stór sundlaug, leiksvæði fyrir börn og útivistarsvæði. Einnig er boðið upp á sérstakt líkamsræktarsvæði utandyra með tækjum sem henta fyrir fjölbreytta hreyfingu. Lyftur eru í byggingunum og íbúðirnar eru með bílastæði í bílakjallara eða utanvið.
Staðsetningin er afar góð fyrir þá sem vilja njóta bæði stranda og golfvallanna á Costa Blanca. Innan 15 mínútna aksturs má komast á strendur Guardamar del Segura, Torrevieja og Orihuela Costa, auk vinsælla golfvalla á borð við Las Colinas, La Finca og Villamartín.
San Miguel de Salinas er frábær kostur hvort sem leitað er að hluta eða heilsársheimili. Í bænum er öll helsta þjónusta, þar á meðal grunn- og framhaldsskólar með gott orðspor, bankar, heilsugæsla sem er opin allan sólarhringinn, þrjú apótek, stór útisundlaug, fótbolta- og frjálsíþróttavöllur, tennis- og padelvellir, körfuboltavöllur og keiluvöllur.
Bærinn býður einnig upp á fjölbreytt úrval veitingastaða og bara, bæði spænska og alþjóðlega. Í miðbænum einum eru nærri 30 veitingastaðir og barir, sem gerir hinn árlega tapas-viðburð bæjarins sérstaklega vinsælan.
Alicante- og Murcia-flugvellir eru báðir í um 40 mínútna akstursfjarlægð.
Nature Apartments er því frábær kostur fyrir þá sem vilja nútímalega íbúð í notalegu spænsku bæjarumhverfi, með strendur, golfvelli og alla helstu þjónustu innan seilingar.
Vista| New | Íbúðir |
| Verð frá: €269,900 | Stærð: 80 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Nature Apartments | Svefnherb.: 3 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 59 m2 |
| Lyfta: Já | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Innbyggð | Helstu stærri raftæki: Nei |
| Verönd: Nei | Sundlaug í sameign |
| Nálægt verslun | Skirteini fyrir orkunotkun |







































