2ja Svefnherb. Íbúðir í Pilar de la Horadada, Costa Blanca Suður €250,000
Aðrar útfærslur af þessari eign
Glæsilegar nýbyggingar í Pilar de la Horadada - Afhending í júní 2028
Thiar Village VI er glæsileg ný íbúðabyggð á eftirsóttum stað í Pilar de la Horadada, í göngufæri við alla helstu þjónustu og fallegar Bláfánastrendur Costa Blanca.
Í boði eru nútímalegar íbúðir með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Íbúðir á jarðhæð eru með stórum görðum, íbúðir á miðhæðum með rúmgóðum veröndum og þakíbúðir með sólríkum svölum og stórum sólpöllum með glæsilegu útsýni.
Allar íbúðir eru með opnu alrými þar sem stofa og eldhús mynda eina heild, þvottaaðstöðu og rúmgóðu aðalsvefnherbergi með innbyggðum fataskápum og sérbaðherbergi. Annað svefnherbergi og baðherbergi eru einnig til staðar. Vandaður frágangur, nútímalegt eldhús og undirbúningur fyrir loftkælingu fylgja öllum eignum. Sérbílastæði í bílakjallara er innifalið í verði og lyfta tengir hæðirnar við bílakjallarann.
Lokað íbúðarsvæði býður upp á glæsilega sameiginlega aðstöðu með fallegum görðum, sundlaug, loftkældri líkamsræktaraðstöðu utandyra, gufubaði og nuddpotti.
Staðsetningin í miðbæ Pilar de la Horadada er frábær, með verslunum, bakaríum, kaffihúsum og fjölbreyttum veitingastöðum í næsta nágrenni. Fallegar strendur Torre de la Horadada eru skammt undan og Lo Romero golfvöllurinn er í aðeins um 10 mínútna akstursfjarlægð.
Svæðið nýtur um 320 sólardaga á ári og býður upp á dæmigert Miðjarðarhafsloftslag, gott hjólreiðastígakerfi og fjölbreytta afþreyingarmöguleika. Murcia-flugvöllur er í um 40 mínútna akstursfjarlægð og Alicante-flugvöllur í um 55 mínútur.
Frábært tækifæri til að eignast glæsilega nýbyggingu á sólríkri Costa Blanca – tilvalið sem sumarhús, framtíðarheimili eða fjárfesting.
Vista| New | Íbúðir |
| Verð frá: €250,000 | Stærð: 74 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Thiar Village VI | Svefnherb.: 2 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Svalir: 8 m2 |
| Lyfta: Já | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Innbyggð | Helstu stærri raftæki: Nei |
| Bílskúr: Bilakjallari | Verönd: Nei |
| Sundlaug í sameign | Nálægt verslun |
| Skirteini fyrir orkunotkun |













































