2ja Svefnherb. Sérhæðir í Pilar de la Horadada, Costa Blanca Suður €299,900

Aðrar útfærslur af þessari eign

2ja Svefnherb. Sérhæðir í Pilar de la Horadada

  • €320,000
  • New
  • 2 Baðherbergi
  • 2 svefnherb.
  • Stærð: 60 m2 Byggðir
  • Sundlaug í sameign
  • Nálægt verslun

3ja Svefnherb. Sérhæðir í Pilar de la Horadada

  • €375,000
  • New
  • 2 Baðherbergi
  • 3 svefnherb.
  • Stærð: 88 m2 Byggðir
  • Sundlaug í sameign
  • Nálægt verslun

3ja Svefnherb. Sérhæðir í Pilar de la Horadada

  • €375,000
  • New
  • 2 Baðherbergi
  • 3 svefnherb.
  • Stærð: 77 m2 Byggðir
  • Sundlaug í sameign
  • Nálægt verslun

Nýjar íbúðir í Pilar de la Horadada - Afhending byrjar í júlí 2027

Thiar Village V er nýtt og glæsilegt verkefni með 2 og 3 svefnherbergja eignum með 2 baðherbergjum, staðsett í Pilar de la Horadada og í göngufæri við alla helstu þjónustu og fallegar Bláfánastrendur.

Í boði eru íbúðir á jarðhæð með stórum sérgörðum og íbúðir á efri hæð með sólríkum svölum og stórum sérþakveröndum með fallegu útsýni yfir nærliggjandi svæði.

Íbúðirnar eru með opnu og björtu alrými þar sem stofa og nútímalegt eldhús tengjast, þvottaherbergi, rúmgóð svefnherbergi með innbyggðum fataskápum og 2 baðherbergi, þar af eitt en suite í hjónaherbergi. Þakíbúðirnar eru einnig með rúmgóðri verönd og aðgangi að sérsólpalli á þaki hússins þar sem hægt er að njóta sólarinnar allan daginn.

Hverfið er lokað og afgirt, með fallega hönnuðum görðum og sameiginlegri sundlaug. Allar eignir eru byggðar með vönduðum frágangi og háum gæðakröfum og eru með nútímalegu eldhúsi, loftkælingu og bílastæði í kjallara.

Frábær staðsetning

Thiar Village V er staðsett miðsvæðis í Pilar de la Horadada, þar sem allt er innan seilingar, verslanir, bakarí, kaffihús, veitingastaðir og önnur þjónusta. Aðalverslunargatan Calle Mayor býður upp á fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða og Plaza de la Iglesia er kjörinn staður til að setjast niður og njóta kaffi eða drykkjar.

Fallegar strendur Torre de la Horadada eru skammt frá og svæðið býður upp á dæmigert Miðjarðarhafsloftslag með mildum sjávargolum á sumrin og góðu skjóli frá norðanáttum á veturna.

Hér má njóta allt að 320 sólardaga á ári, auk góðra hjólastíga og fjölbreyttrar íþróttaaðstöðu. Lo Romero Golf er aðeins um 10 mínútna akstur frá verkefninu.

Frábær kostur fyrir þá sem vilja nýtt og vandað heimili í göngufæri við þjónustu og nálægt ströndinni.

Afhending byrjar í júlí 2027

Vista
NewSérhæðir
Verð frá: €299,900Stærð: 69 m2 Byggðir
Tilvísun: Thiar Village VSvefnherb.: 2
Fjöldi Baðherbergja: 2Garður: 58 m2
Lyfta: NeiKjallari: Nei
Loftkæling: InnbyggðHelstu stærri raftæki: Nei
Verönd: 19 m2Sundlaug í sameign
Nálægt verslunSkirteini fyrir orkunotkun
Fylltu út formið hér að neðan til að senda þínar spurningar í tölvupósti

Skráðu þig og fáðu sent fréttabréf okkar með nýjustu upplýsingum um fasteignir, svæðin, sérstaka afslætti og tilboð. Sjáðu hér friðhelgisstefnu okkar; Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

Upplýsingarnar á þessari síðu eru útvegaðar af byggingaraðilum og fulltrúum þeirra. Viðskiptavinir geta fundið allar þessar upplýsingar sem kveðið er á um í skýrslu RD 515/89 á skrifstofu þessara aðila.