3ja Svefnherb. Sérhæðir í Pilar de la Horadada, Costa Blanca Suður €375,000
Aðrar útfærslur af þessari eign
Nýjar íbúðir í Pilar de la Horadada - Afhending byrjar í júlí 2027
Thiar Village V er nýtt og glæsilegt verkefni með 2 og 3 svefnherbergja eignum með 2 baðherbergjum, staðsett í Pilar de la Horadada og í göngufæri við alla helstu þjónustu og fallegar Bláfánastrendur.
Í boði eru íbúðir á jarðhæð með stórum sérgörðum og íbúðir á efri hæð með sólríkum svölum og stórum sérþakveröndum með fallegu útsýni yfir nærliggjandi svæði.
Íbúðirnar eru með opnu og björtu alrými þar sem stofa og nútímalegt eldhús tengjast, þvottaherbergi, rúmgóð svefnherbergi með innbyggðum fataskápum og 2 baðherbergi, þar af eitt en suite í hjónaherbergi. Þakíbúðirnar eru einnig með rúmgóðri verönd og aðgangi að sérsólpalli á þaki hússins þar sem hægt er að njóta sólarinnar allan daginn.
Hverfið er lokað og afgirt, með fallega hönnuðum görðum og sameiginlegri sundlaug. Allar eignir eru byggðar með vönduðum frágangi og háum gæðakröfum og eru með nútímalegu eldhúsi, loftkælingu og bílastæði í kjallara.
Frábær staðsetning
Thiar Village V er staðsett miðsvæðis í Pilar de la Horadada, þar sem allt er innan seilingar, verslanir, bakarí, kaffihús, veitingastaðir og önnur þjónusta. Aðalverslunargatan Calle Mayor býður upp á fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða og Plaza de la Iglesia er kjörinn staður til að setjast niður og njóta kaffi eða drykkjar.
Fallegar strendur Torre de la Horadada eru skammt frá og svæðið býður upp á dæmigert Miðjarðarhafsloftslag með mildum sjávargolum á sumrin og góðu skjóli frá norðanáttum á veturna.
Hér má njóta allt að 320 sólardaga á ári, auk góðra hjólastíga og fjölbreyttrar íþróttaaðstöðu. Lo Romero Golf er aðeins um 10 mínútna akstur frá verkefninu.
Frábær kostur fyrir þá sem vilja nýtt og vandað heimili í göngufæri við þjónustu og nálægt ströndinni.
Afhending byrjar í júlí 2027
Vista| New | Sérhæðir |
| Verð frá: €375,000 | Stærð: 88 m2 Byggðir |
| Tilvísun: Thiar Village V | Svefnherb.: 3 |
| Fjöldi Baðherbergja: 2 | Lyfta: Nei |
| Lóð: 225 m2 | Kjallari: Nei |
| Loftkæling: Innbyggð | Helstu stærri raftæki: Nei |
| Verönd: 18 m2 | Sundlaug í sameign |
| Nálægt verslun | Skirteini fyrir orkunotkun |









































